Skilasýning Hólanema

Skilasýning 2. árs nema í hestafræðideild Hólaskóla var haldin í Þráarhöllinni sl. laugardag tókst hún með ágætum, samkvæmt heimasíðu Hólaskóla. Þá sýndu nemendur eigendum og öðrum gestum afrakstur vinnu sinnar undanfarnar vikur. Annars vegar var um að ræða allstóran hóp frumtamningatrippa og hins vegar nokkurn hóp meira taminna hrossa sem komu til þjálfunar.

Alls vor skráð til sýningar 34 frumtamningatrippi og 15 þjálfunarhross. Nemendur sýndu hrossin fyrst inni í Þráarhöllinn, undir beinni lýsingu kennaranna, en tóku síðan nokkra hringi úti á vellinum.

Fastir kennarar í þessum námskeiðum eru þeir Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Þórir Ísólfsson í frumtamningum, en Þorsteinn Björnsson og Hekla Katharína Kristinsdóttir í þjálfun.

Á heimasíðunni segir að allnokkur hópur gesta hafi verið viðstaddur sýninguna auk flestra eigenda. „Er það vel að hrossaræktendur og aðrir hestaáhugamenn gefi sér tíma til að koma hingað heim að Hólum á dögum sem þessum og kynna sér árangurinn af starfinu í hestafræðideildinni,“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri fréttir