Skín við sólu

Í Feyki í dag er fjallað um tilurð ljóðsins Skagafjörður sem flestir þekkja sem Skín við sólu Skagafjörður eftir Matthías Jochumsson við lag Sigurðar Helgasonar og hvernig gera á því hærra undir höfði í framtíðinni. Nú í vetur hafa nemendur 5. bekkjar grunnskólanna í Skagafirði haft ljóðið til skoðunar og unnið með það hvert á sinn hátt og útfærslurnar æði mismunandi en markmiðið er að þau börn sem alast upp í Skagafirði kynnist ljóðinu og þeirri fallegu lýsingu á Skagafirði sem það geymir.

Á yfirreið sinni um héraðið er blaðamaður kynnti sér hvað nemendur hafa verið að fást við í verkefninu mátti sjá að útfærslurnar voru mjög fjölbreytilegar allt frá teikningum og málun í textíl og útsaum. Þá höfðu krakkarnir æft sig í að syngja lagið og þau sem það gerðu fyrir blaðamann gerðu það af þvílíkri innlifun og öryggi ásamt glaðlegri útgeislun að kallaði fram ósvikna gæsahúð viðstaddra.

Hugmyndin er sú að sögn Herdísar Sæmundardóttur fræðslustjóra svf. Skagafjarðar að þetta verði árlegt verkefni og að nemendur fimmta bekkjar syngi fyrsta og síðasta erindi ljóðsins við skólaslit sinna skóla en með þeim hætti munu allir læra lag og ljóð eða a.m.k. að kannast við það er það heyrist sungið.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá brot af söng nemenda á Hólum og Varmahlíð en þau síðarnefndu tóku upp á því að rappa lagið í byrjun þar sem það hjálpaði við að muna textann.

http://www.youtube.com/watch?v=W4ovfVqYkDA

Fleiri fréttir