Skipun nefndar sem fer yfir vegi og skipulag
Ráðgert er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga, Mbl.is greinir frá þessu.
Þar segir að tilefni skipunar nefndarinnar sé sú umræða sem hefur orðið um þá ákvörðun sem tekin var að hætta að vinna að hugmyndum um styttingu hringvegarins í Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði, samkvæmt upplýsingum frá Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra.
„Ögmundur telur umræðuna gefa tilefni til að velta fyrir sér endurskoðun skipulagslaga og vegalaga og veltir því fyrir sér hvort bræða þurfi saman vinnu þeirra tveggja sjálfstæðu stjórnsýslustiga sem vinna að þessum málum,“ segir á Mbl.is.