Skjaldborg er handhafi Eyrarrósarinnar 2020

Frá afhendingu Eyrarrósarinnar 2020. Aðsend mynd.
Frá afhendingu Eyrarrósarinnar 2020. Aðsend mynd.

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var veitt í sextánda sinn í dag, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Frú Eliza Reid, forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin og var það Skjaldborg – Hátíð íslenskra heimildarmynda á Patreksfirði sem hlaut viðurkenninguna að þessu sinni. Kakalaskáli í Skagafirði komst einnig í lokatilnefninguna ásamt Menningarstarfi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði en hvort verkefnið um sig fær í sinn hlut verðlaunafé að upphæð 500.000 kr.

Í fréttaskeyti segir að aðstandendur hátíðarinnar á Patreksfirði hafi að vonum verið hæstánægðir þegar þeir tóku á móti viðurkenningunni og verðlaunafé, enda í þriðja sinn sem hátíðin kemst á Eyrarrósarlistann. 

Alls bárust 25 umsóknir um Eyrarrósina 2020 hvaðanæva af landinu og voru sex verkefni valin á Eyrarrósarlistann í ár:
Júlíana – hátíð sögu og bóka (Stykkishólmur)
Kakalaskáli í Skagafirði (Akrahreppur)
Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði (Fjallabyggð, Siglufjörður)
Plan B Art Festival (Borgarbyggð/Vesturland)
Reykholtshátíð (Borgarfjörður/Vesturland)
Skjaldborg – Hátíð íslenskra heimildarmynda (Patreksfjörður).

UM VERKEFNIN

Júlíana - hátíð sögu og bóka
Framtak fjögurra kvenna í Stykkishólmi sem ákváðu að koma á fót bóka- og söguhátíð að vetri til þess að lífga upp á menningarlífið í bænum. Fyrsta hátíðin fór fram í febrúar 2013 og hefur verið haldin árlega síðan. Hátíðin hefur að leiðarljósi að stuðla að umfjöllun um þýðingu sögunnar og sagnaarfsins í samtímanum og hverfist hver hátíð um ákveðið viðfangsefni. Júlíana – hátíð sögu og bóka er haldin í góðu samstarfi við ýmsar menningar- og menntastofnanir Stykkishólmsbæjar og býður árlega heim rithöfundum í fremstu röð. Hátíðin ber nafn Júlíönu Jónsdóttur í Akureyjum (1838-1917), fyrstu íslensku skáldkonunnar sem fékk gefna út eftir sig ljóðabók og leikrit eftir sig sett á svið.

Kakalaskáli í Skagafirði - TILNEFNING
Í Kakalaskála er sögu Sturlungaaldar miðlað á afar áhugaverðan hátt. Um er að ræða sögu- og listasýningu með hljóðleiðsögn. Sýningin var unnin af 14 listamönnum frá 10 mismunandi þjóðlöndum vorið 2019 sem gefur nýja og ferska sýn á þjóðararfinn og stendur fyrir sínu bæði sem sögu- og listasýning. Á staðnum er einnig sérstætt útilistaverk sem sviðsetur Haugsnesbardaga. Útilistaverkið samanstendur af rífega 1300 steinum sem taka hver álíka pláss og einn maður í herfylkingu myndi gera. Sviðsmyndin sýnir fylkingar Sturlunga og Ásbirninga skömmu áður en þær skella saman í bardaga. Verkið er unnið af Sigurði Hansen.

Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði - TILNEFNING
Í Alþýðuhúsinu á Siglufirði hefur um árabil verið rekið fjölþætt menningarstarf allt árið um kring sem hefur haft mikil áhrif á bæjarbraginn. Aðstaðan er góð fyrir sýningar í litla sýningarrýminu Kompunni, haldnir eru fyrirlestrar og kynningar af ýmsum toga í alrými hússins og í stóra vinnusalnum eru haldnir tónleikar, listasmiðjur, fjöllistasýningar, gjörningar og margt fleira. Á þeim 8 árum sem starfseminni hefur verið haldið úti hafa um þúsund listamenn og skapandi einstaklingar komið fram í Alþýðuhúsinu og um 300 viðburðir verið settir upp fyrir gesti og gangandi að njóta.

Plan-B Art Festival, Borgarnesi
Grasrótarhátíðin Plan-B Art Festival hefur frá árinu 2016 fest sig í sessi sem þekkt stærð íslensku listalífi og vex ásmegin ár frá ári. Hátíðin er haldin árlega í Borgarnesi og nærsveitum.  Stefna Plan-B Art Festival er að vera vettvangur fyrir listamenn til að þróa hugmyndir sínar og listsköpun í því formi sem þeir kjósa. Þeir miðlar sem listamenn hátíðarinnar vinna í eru því fjölbreyttir, allt frá málverki til gjörninga, sem gerir hátíðina að upplifun sem gestir taka beint og óbeint þátt í að skapa.

Reykholtshátíð í Borgarfirði
Reykholtshátíð er ein af rótgrónustu tónlistarhátíðum landsins og hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1996 síðustu helgina í júlí í Reykholti í Borgarfirði. Flytjendur úr fremstu röð íslensks tónlistarlífs hafa komið fram á hátíðinni í gegnum tíðina auk margra erlendra gesta. Aðstandendur Reykholtshátíðar hafa unnið brautryðjendastarf á Íslandi með því að halda úti tónlistarhátíð á landsbyggðinni með áherslu á klassíska söng- og hljóðfæratónlist.  Hátíðin er mikilvægur viðburður í menningarlífi sögustaðarins Reykholts og telst til eins af hápunktum ársins í menningarlífi Vesturlands og á landsvísu.

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda, Patreksfirði - TILNEFNING
Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda er kraftmikil uppskeruhátíð heimildamyndafólks og eina íslenska kvikmyndahátíðin sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. Reynsluboltar í faginu, byrjendur og hinn almenni áhorfandi koma saman á hátíðinni í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar. Auk frumsýninga eru á dagskrá vinnustofur, hliðardagskrá og skemmtanahald sem setur mikinn svip á Patreksfjörð á meðan á hátíðinni varir.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir