Skjálftar og eldgos í 15 ár

Hér má sjá býsna magnað myndband sem sýnir jarðskjálfta og eldgos sem hafa átt sér stað á Íslandi sl. 15 ár á 4 mínútum, eða frá árinu 1996. Um er að ræða 242.724 jarðskjálfta og sjö eldgos.

Dekkri lituðu hringirnir sýna jarðskjálfta sem eiga upptök sín djúpt í jörðu en þeir ljósari gera skjálftum sem eiga sér stað grynnra skil. Stærð hringa gefur til kynna styrk skjálftanna. Stjörnur merkja eldgos.

Myndbandið sýnir 24 ramma á sekúndu og því er hver sekúnda eins og einn mánuður í rauntíma.

http://vimeo.com/24442762

 

Fleiri fréttir