Skólastjóri Varmahlíðarskóla annist einnig íþróttamannvirki í Varmahlíð

Samstarfsnefnd Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt að auglýsa eftir nýjum skólastjóra Varmahlíðarskóla en gert er ráð fyrir að hann taki til starfa í síðasta lagi þann 1. ágúst 2011. Gerður verður starfssamningur við væntanlegan skólastjóra sem tekur mið af almennum lagalegum skyldum sambærilegra starfa. Jafnframt verður leitað eftir því við nýjan skólastjóra að hann eða staðgengill hans, annist umsjón íþróttamannvirkja í Varmahlíð í að minnsta kosti tólf mánuði við upphaf ráðningartíma. Þessi tími verður notaður til að reyna að ná fram frekari hagræðingu í rekstri sundlaugar og íþróttahúss í Varmahlíð til lengri tíma. Skólastjóri skal hafa náið samstarf við umsjónarmann íþróttamannvirkja í Sveitarfélaginu Skagafirði og vaktstjóra íþróttamannvirkja í Varmahlíð.

Fleiri fréttir