Skór sem ganga of langt!

Fröken Fabjúlöss -rétt eins og svo margir aðrir kvenmenn- dílar við ákveðið blæti þegar kemur að skóm! Fallegir skór eru dálæti Frk. Fab og á hún allnokkur pör sem eru á hávegum höfð og til sýnis í forstofunni!

En í skóbransanum, eins annarsstaðar í tískuheiminum er hægt að ganga of langt (skemmtilegur orðaleikur, algjörlega óvart) og skemmtir Frk. Fab sér oft við að browsa í gegnum myndir þar sem hugmyndaflugið hefur gjörsamlega tekið völdin úr höndum hönnuðarins. Skórnir eru ekkert annað en skúlptur með eitthvað allt annað en þægilegheit og notagildi í huga þó skemmtanagildið sé í hávegum haft :)

Fleiri fréttir