Skotvopna- og veiðikortanámskeið í Varmahlíð
Til stendur að halda Skotvopna- og veiðikortanámskeið í Hótel Varmahlíð fyrir umsækjendur um skotvopnaleyfi og undirbúningsnámskið fyrir hæfnispróf veiðimanna. Skotvopnanámskeiðið verður haldið dagana 23.-27. október og veiðikortanámskeiðið þann 30. október.
Skotvopnanámskeið í Varmahlíð
Miðvikudaginn 24. október 2012
klukkan 18:00-22:00
- Skotvopn og skotfæri
- Öryggi og meðhöndlun
- Skotfimi og eiginleikar skotfæra
Fimmtudaginn 25. október 2012
klukkan 18:00-22:00
- Vopnalöggjöfin
- Landréttur
- Próf
Laugardaginn 27. október 2012
klukkan 10:00.
- Verkleg undirstöðuþjálfun á skotsvæði Skotfélagsins Ósmann. (Nánari upplýsingar um framkvæmd verklegrar þjálfunar verða veittar á námskeiðinu).
Staðsetning kennslu: Hótel Varmahlíð.
Kennari: Einar Guðmann
Umsjón með verklegri þjálfun: Skotfélagið Ósmann.
Próf er tekið að loknum fyrirlestri á námskeiðinu. Fullnægjandi árangur á prófinu er 75% rétt svör. Mælt er með að nemendur lesi „Skotvopnabókina“ áður en námskeiðið hefst. Bókin er ekki innifalin í námskeiðsgjaldinu. Hún fæst í bókabúðum.
Veiðikortanámskeið í Varmahlíð
Þriðjudaginn 30. október 2012
klukkan 17:00 til 23:00.
- Bráðin
- Lög reglur og öryggi
- Náttúru- og dýravernd
- Stofnvistfræði
- Veiðar og veiðisiðfræði
- Próf
Staðsetning: Hótel Varmahlíð
Kennari: Einar Guðmann
Próf er tekið að loknum fyrirlestri á námskeiðinu. Fullnægjandi árangur á prófinu er 75% rétt svör. Mælt er með að nemendur lesi bókina „Veiðar á villtum fuglum og spendýrum“ áður en námskeiðið hefst. Bókin er ekki innifalin í námskeiðsgjaldinu. Hún fæst í bókabúðum.
Þess má geta að þátttakendur á skotvopnanámskeiðum þurfa að skila inn sakavottvottorði, læknisvottorði og passamynd til lögreglunnar þar sem þeir eiga lögheimili fyrir námskeiðin. Læknisvottorðið þarf að vera sérstaklega útgefið vegna skotvopnaleyfis. Skráning og nánari upplýsingar á vefnum veidikort.is.
Heimild: veidikort.is