Skráning í Vetrar T.Í.M. lýkur á morgun

Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar eru foreldrar beðnir um að ljúka skráningu vegna þátttöku barna sinna í íþróttastarfi vetrarins fyrir miðnætti annað kvöld. Öll börn sem æfa fótbolta, körfu, frjálsar og sund hjá Tindastóli skal skrá inn í kerfið.

Skráningu lýkur eins og áður segir á morgun þriðjudaginn 23. október. Bent er á að skráningin nú er bindandi fyrir allan veturinn en hægt verður að afskrá og nýskrá börn í byrjun janúar 2013.

Sjá nánar á Skagafjörður.is

Fleiri fréttir