Skruðningar og skriðufall í Móafellshyrnu

Stór skriða féll úr Móafellshyrnu, í Fljótum klukkan 12:30 fimmtudaginn 20. september. Skriðan átti upptök sín ofarlega í fjallinu í minni Móafellsdals að austanverðu. Að sögn heimamanna á Þrasastöðum urðu þau vör við mikla skruðninga úr fjallinu um klukkan 12:30 og sáu rykmökk stíga upp ofarlega í fjallinu.

Líklega hefur skjálftavirknin úti fyrir norðurlandi undafarna daga og sú mikla úrkoma sem fallið hefur verið megin orsakavaldur hrunsins. Mynd: Þorsteinn Sæmundsson

Skruðningar og hrun héldu síðan áfram í allt að einn og hálfan tíma eftir að þau urðu fyrst vör við skriðuna. Að sögn Dr. Þorsteins Sæmundssonar forstöðumanns Náttúrustofu Norðurlands vestra sem fór að skoða ummerki skriðunnar í gær, er skriðan í stærri kantinum og ákaflega áberandi í snjóhvítum hlíðum fallsins. Upptök skriðunnar eru í klettabelti ofarlega í fjallinu, en þar hefur hluti klettabeltisins fallið niður á lítinn hjalla og steypst fram af honum og niður hlíð fjallsins. Skriðan endaði niður við Galtará en náði þó ekki að stífla hana.

Heimamenn á Þrasastöðum urðu vör við mikla skruðninga úr fjallinu um klukkan 12:30 og sáu rykmökk stíga upp ofarlega í fjallinu. Mynd: Þorsteinn Sæmundsson

Um orsakir fyrir skriðufallinu segir Þorsteinn að líklega hefur skjálftavirknin úti fyrir norðurlandi undafarna daga og sú mikla úrkoma sem fallið hefur verið megin orsakavaldur hrunsins. Snarpur jarðskjálftakippur hafi orðið um klukkan 9 um morguninn og fundu ábúendur á Þrasastöðum fyrir honum. Þorsteinn vill beina þeim tilmælum til þeirra sem ætla sér að skoða skriðuna að vera alls ekki á ferð undir skriðuörinu því búast megi við því að það hrynji meira úr því.

Svona leit Móafellshyrnan út á góðum sumardegi er Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson átti leið um Fljótin en hann er myndasmiðurinn.

Fleiri fréttir