Skuggalega skemmtilegur skúlptúr!
Um daginn var Fröken Fabjúlöss að feta hinn daglega netrúnt í rólegheitunum þegar hún hnaut um forláta færslu inni á Pjattrofur.is og kemur frökenin líklega ekki til með að bera sitt barr af löngun eftir lestur þann.
Það vill nefnilega svo skemmtilega til að Fröken Fabjúlöss er afar ástríðufull þegar kemur að ævintýrum, og er heilluð af öllu sem minnir á skógarálfa, galdra og almenna dulúð, og þessvegna missti hjartað úr slag þegar hún rak augun í þessa dásamlega fallega hönnuðu ljósakrónu sem réttilega ber nafnið "Forms in nature" frá Dönsku listamönnunum Hilden og Diaz. Sjaldan hefur Frk. Fab augum barið aðra eins snillarhönnun og er þessi ljósakróna að sjálfsögðu ekkert annað en listaverk!
Ljósakrónan er búin til úr hvítum trjágreinum (hvort þær eru ekta eða feik veit Frökenin ekki) og þegar kveikt er á ljósakrónunni breytist umhverfið úr venjulegu herbergi í ævintýralegt rými fyllt dulúðarfullum skuggum trjágreina.
Þetta er eitthvað sem Fröken Fabjúlöss myndi hafa í hverju herbergi heima hjá sér ef hún hefði tök á. Ljósakrónan dásamlega virðist ekki vera komin í sölu enn sem komið er, en vonandi mun hún detta í búðir bráðlega og munum við hérna í heimshorni Fabjúlössmans bíða með öndina í hálsinum og von um að hún kosti nú eitthvað minna en hvítuna úr augunum.