Skuggalegir og skemmtilegir skór

Ekki hefur almenningur sá er les hugrenningar Fröken Fabjúlöss farið varhluta af því að Frökenin er með skófíkn á háu stigi. Fallegt par af skóm er í huga Frk. Fab allra meina bót og enginn dagur er svo slæmur að flottir skór geti ekki bætt hann!

Þar sem Fröken Fabjúlöss er skápapönkari, þá er eitt af hennar uppáhalds skómerkjum Iron Fist! Iron Fist skórnir eru fallegir skór í rokkaðri kantinum, með góðri blöndu af húmor og attitúdi og til þess hannaðir að fólk taki heldur betur eftir þeim! Reyndar er Frk. Fab ekkert að missa sig yfir Zombie þemanu sem hönnuðir Iron Fist detta stundum inn í, en af nógu öðru er að taka.

Fröken Fabjúlöss getur með bros á vör og stolt í hjarta viðurkennt að hún eigi eitt par af Iron Fist skóm og algjörlega ELSKAR þá! Frk. Fab hefur enn ekki fundið búð á Íslandi sem selur þessa dásemd, en hefur reyndar ekki lagt sig neitt sérstaklega vel fram við að leita... En örvæntið eigi því bæði er hægt að fjárfesta í pari inni á heimasíðu Iron Fist eða smella sér inn á ebay og skrifa "iron fist shoes" í leitargluggann. Fröken Fabjúlöss aðhyllist seinni aðferðina frekar, þar sem skórnir eru ódýrari þar, og úrvalið betra!

Fleiri fréttir