Skýjaborg í sal Frímúrara

Danssýningin Skýjaborg verður sýnd í sal Frímúrara á Sauðárkróki mánudaginn 11. febrúar nk. kl. 17.00. Sýning er sérstaklega hugsuð fyrir yngstu börnin þar sem litir, form, ljós og tónlist tala til barnanna. Húsið opnar kl 16:30, miðar seldir í anddyrinu og er miðaverð  kr. 1000 en enginn kortaposi er á staðnum.

Verkið Skýjaborg fjallar um tvær verur, Sunnu og Storm, sem vakna furðulostnar upp á ókunnum stað. Þegar þær eru að byrja að ná áttum fer vindurinn skyndilega að blása og umhverfið breytist. Á þessum dularfulla stað eru sífelld veðrabrigði, stundum er veðrið ógnvænlegt, stundum gott og blítt og verurnar verða því stöðugt að takast á við nýjar aðstæður. Sýningin tekur tæpan hálftíma en í lok hennar er börnunum boðið að koma á sviðið til að leika sér, hitta verurnar og skoða leikmyndina. Höfundur Skýjaborgar er Tinna Grétarsdóttir.

Fleiri fréttir