Slasaður ferðamaður sóttur á hálendið
Á fimmtudagskvöldð voru björgunarsveitir af Norðurlandi kallaðar út til að sækja erlendan ferðamann sem slasaður var á hné í Laugarfell. Farið var af stað úr Skagafirði, Eyjafirði og upp Bárðardal úr Þingeyjarsýslum vegna mikillar óvissu um færð á svæðinu en þar eru allir hálendisvegir lokaðir.
Ekki var talið að maðurinn væri mikið slasaður sem kom svo í ljós, en var hann fluttur niður í Skagafjörð af Flugbjörgunarsveitinni í Varmaahlíð og Skagfirðingasveit en þær fóru á tveimur bílum upp. Færið var ágættað misblautt í lægðum. Þetta kemur fram á heimasíðu FBSV.