Sláttur hafinn í Skagafirði

Trausti Kristjánsson bóndi á Syðri-Hofdölum í Skagafirði hóf heyskap í þurrkinum í gær er hann sló um þriggja hektara nýrækt frá í fyrra. Ágætt gras var á túninu sem slegið var en Trausti segir að lítið sé að gerast á öðrum stykkjum vegna þurrka.

Það eina sem bjargar er að gróður fór vel af stað í vor og segir Trausti að hann hafi náð að bera á fyrir hretið sem skall á landinu fyrir skömmu og þakkar hann því að gróður hefur náð þó þetta langt. Ekkert sé að gerast í flögum frá því í vor þar sem lítið sem ekkert hefur rignt en náttfallið nái þó aðeins að væta rætur á túnum.

-Það er kannski að það fari nú að rigna fyrst ég er byrjaður að slá, segir Trausti í gamansömum tón.

Fleiri fréttir