Slökkviliðsmenn leggja Magga lið
Dagatal sem slökkviliðsmenn í Skagafirði sátu fyrir á og gáfu út fyrir árið 2011 vakti verðskuldaða athygli og hafa selst eins og heitar lummur. Afrakstur útgáfunnar var ætluð í forvarnarstarf og eins ef salan yrði góð að velja gott málefni til að styrkja. Stjórn Félags slökkviliðsmanna í Skagafirði ákvað að láta 125 þús. kr. renna í söfnun sem nú hefur verið hrundið af stað til styrktar Magnúsi Jóhannessyni sem slasaðist alvarlega fyrir skömmu.
-Magnús var félagi okkar í slökkviliðinu, starfaði með okkur í mörg ár en hann byrjaði í slökkviliðinu á Hofsósi. Við höfum verið að selja dagatölin og ætluðum að styrkja gott málefni með afrakstrinum og okkur finnst þetta vera brýnt málefni sem við viljum endilega styrkja, segir Yngvi Yngvason formaður stjórnarinnar sem vill hvetja alla til að leggja söfnuninni lið og segir að margt smátt gerir eitt stórt. Yngvi segir að örfá dagatöl séu eftir og áhugasamir geta fengið þau keypt á slökkvistöðinni. Vildi hann við þetta tækifæri þakka þeim Pétri Inga Björnssyni og Óla Arnari Brynjarssyni sem sáu um að mynda og setja upp dagatalið án endurgjalds á sínum tíma. –Þeirra vinna var mikil og óeigingjörn og hjálpaði okkur mikið, segir Yngvi en hann og félagar hans sögðu líklegt að gefið yrði út annað dagatal að ári þar sem undirtektirnar væru svo góðar.
Þeir sem vilja leggja Magga lið er bent á Landsbankann reikningsnúmer:
0161-550279
kt: 110468-3429.