Snæfellingar sendu Stólana stigalausa heim

Snæfell og Tindastóll áttust við í Hólminum í gærkvöldi en hlutskipti liðanna það sem af er tímabilinu er æði ólíkt, Snæfellingar efstir en Stólarnir neðstir. Það var reyndar engan veginn hægt að merkja þetta í leiknum en eins og oft áður voru Tindastólsmenn að leika ágætlega fram í fjórða leikhluta en þá kom slæmi kaflinn og leikurinn tapaðist. Lokatölur í gærkvöldi 86-76.

Tindastólsmenn voru sprækir sem lækir í upphafi leiks, komust í 14-7 um miðjan fyrsta leikhluta og í 30-19 snemma í öðrum leikhluta. Allir leikmenn Stólanna sem við sögu komu voru að láta til sín taka og stigaskorið dreifðist ágætlega á mannskapinn. Tindastóll hafði forystu nánast allan fyrri hálfleikinn en í stöðunni 34-39, og fjórar mínútur til leikhlés, kom kafli alveg fram að hálfleik þar sem Stólarnir skoruðu ekki eitt einasta stig. Varnir beggja liða héldu reyndar vel á þessum kafla en Snæfellingar potuðu sér engu að síður fram úr og staðan 41-39 í hálfleik.

Þriðji leikhluti var æsispennandi og skiptust liðin á um að hafa forystuna. Þegar fjórði leikhluti hófst voru Stólarnir stigi yfir, 65-66. Heimamenn komust í 70-66 en Arnar og Svabbi jöfnuðu metin, 70-70. Næstu fjórar mínúturnar þar á eftir gerðu Stólarnir ekki eitt einasta stig, reyndu talsvert af 3ja stiga skotum sem skiluðu sér ekki heim, en Snæfellingum gekk betur og þeir gerðu 10 stig á þessum kafla, og kláruð leikinn. Stólarnir reyndu hvað þeir gátu og minnkuðu muninn í 82-76 þegar ein og hálf mínúta var eftir en heimamenn voru sterkari á lokakaflanum og kláruðu leikinn 86-76.

Ekki kræktu Stólarnir því í fyrstu stigin í Dominos-deildinni í gærkvöldi en liðið hefur nú tapað öllum sex deildarleikjunum á þessum frekar undarlega körfuboltavetri en unnið alla fimm leiki sína í Lengjubikarnum.

Drew Gibson var atkvæðamestur Tindastólsmanna í gær en hann gerði 24 stig, tók 7 fráköst og átti 8 stoðsendingar. Valentine gerði 16 stig og hirti 10 fráköst. Stólarnir áttu aðeins 36 skot innan teigs en tóku 31 3ja stiga skot í leiknum.

Stig Tindastóls: Gibson 24, Valentine 16, Þröstur Leó 10, Helgi Rafn 8, Svabbi 7, Ingvi 3, Helgi Freyr 3, Hreinsi 3 og Arnar 2.

Fleiri fréttir