Snjóflóð í kjölfar óveðursins í byrjun nóvember

Þó nokkur snjóflóð hafa fallið í Skagafirði í óveðrinu í byrjun nóvember og hafa starfsmenn Veðurstofu Íslands haft í nógu að snúast með að skrásetja og mæla útlínur þeirra. Snjóflóð féll úr svonefndri Úlfskál sem liggur fyrir ofan Sleitustaði í mynni Kolbeinsdals og Hjaltadals líklega aðfaranótt sunnudags 4. nóvember. Gestur Hansson snjóeftirlitsmaður Veðurstofunnar fór ásamt Þorsteini Sæmundssyni forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra að mæla flóðið og skoða ummerki þess.

Flóðið er talið hafa átt upptök sín efst í Úlfskál í um 900 m hæð, fallið niður aurkeiluna og niður á ræktuð tún. Að sögn Þorvaldar G. Óskarssonar ábúenda var flóðið með þeim lengri sem fallið hafa á þessu svæði og dreifði það vel úr sér. Flóðið braut niður hlaðinn stífluvegg uppistöðulóns rafstöðvar sem byggð var árið 1947 og eyðilagði girðingar og olli því verulegu tjóni. Á leið sinni hefur flóðið rofið undirlag sitt og flutt mikið magn af torfi og grjóti með sér. Að sögn Þorsteins hefur flóðið verið frekar þurrt en mjög kraftmikið. Til marks um kraft þess flutti það stóran stein sem stóð í um 160 m hæð á aurkeilunni og bar hann með sér alla vega 300 m. Þorsteinn segir að þessi steinn, sem er allt að fjórir og hálfur metri á lengd og vegur líkleg um 60 tonn, sé einn af þeim stærstu steinum sem vitað er um með vissu að snjóflóð hafi borið með sér. Í snjóflóðahrynunni í október 1995 bar snjóflóð sem féll í botni Dýrafjarðar með sér grjót sem var um 35 tonn að þyngd og er þessi steinn því mun stærri en hann. Að sögn Þorsteins verða ummerki snjóflóðsins kortlögð næsta sumar, en á náttúrustofunni hafa farið fram rannsóknir á jarðfræðilegum ummerkjum snjóflóða um árabil.

 

Þorsteinn segir að kraftur snjóflóða sé gríðarlegur og þurfa flóðin ekki að vera stór til að vera hættuleg mönnum. Hann vill því beina því til fólks sem er á ferð í fjallendi, ekki síst snjósleðamanna og rjúpnaveiðimanna að hafa gætur á sér, sér í lagi í kjölfar óveðurs líkt og var um síðustu helgi og eins og spáð er næstu daga.

Fleiri fréttir