Snjóflóðahætta á Hofsósi
Lokað hefur verið fyrir almenna umferð norðan göngubrúar í Kvosinni á Hofsósi vegna yfirvofandi hættu á að hengjur gefi sig. Að sögn Vernharðs Guðnasonar hjá Almannavarnanefnd Skagafjarðar eru miklar snjóhengjur á svæðinu en vegna spá um hláku í kvöld og á morgun var þessi ákvörðun tekin í samráði við sérfræðinga Veðurstofunnar.
Lokunin mun hafa áhrif á starfsemi Fánasaumastofunnar og Vesturfarasetrið sem eru staðsett í Kvosinni sem og á þá sjómenn sem þurfa að fara um svæðið til að komast í báta sína.
Hættuástandið verður endurmetið í fyrramálið að sögn Vernharðs.
Á vef almannavarna Ríkislögreglustjóra segir að þó svo að engar aðrar formlegar rýmingar séu í gangi vegna snjóflóðahættu eru aðstæður víða þannig að mikill snjór er í fjöllum og ástæða til þess að ferðafólk fari varlega.
„Þetta á sérstaklega við þá sem fara til fjalla en nú þegar hafa borist fréttir af snjóflóðum sem fallið hafa í nágrenni við vélsleðamenn.
Víða á landinu eru hlýindi og rigning og rétt að fólk fylgist með niðurföllum við hús sín vegna hættu á að snjór og klaki stífli þau með tilheyrandi hættu á vatnstjóni,“ segir á almannavarnir.is .