Snjókistan Sauðárkrókur - myndband
Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að snjóað hefur hressilega á okkur Norðlendinga og samkvæmt spánni munu veðurguðirnir halda áfram á þeirri braut. Stefán Arnar Ómarsson á Sauðárkróki tók upp skemmtilegar vetrarmyndir á Króknum og setti á YouTube og fékk Feykir.is leyfi til að birta það.
Þeir sem taka myndir eða myndbönd af hverju sem er og vilja deila með lesendum Feykis eru hvattir til að hafa samband.
http://www.youtube.com/watch?v=xZP83sncq3U