Sögusetur íslenska hestsins fær rekstrarstyrk
Byggðarráð ætlar að styrkja Sögusetur íslenska hestsins um 1.500.000 kr. á árinu 2012. Þetta kom fram á fundi Byggðarráðs Skagafjarðar sem haldinn var þann 4. október sl.
Í fundargerð kemur fram að Sögusetur íslenska hestsins hafi sent sveitarfélaginu Skagafirði bréf þar sem óskað var eftir rekstrarstyrk en í bréfinu kom einnig fram að mennta- og menningarráðuneytið muni styrkja setrið um fjórar milljónir króna á árinu.
„Byggðarráð samþykkir að styrkja Sögusetur íslenska hestsins í ljósi aðkomu mennta- og menningarráðuneytisins um 1.500.000 kr. á árinu 2012. Gert er ráð fyrir þessum kostnaði í fjárhagsáætlun ársins,“ segir loks í fundargerð.