Sóldís með tónleika á konudaginn
Kvennakórinn Sóldís heldur tónleika í Miðgarði á konudaginn sem er nk. sunnudag. FeykirTV fór á æfingu hjá dömunum og stálumst við til að mynda þegar þær æfðu lagið ,,Líttu hvert sólarlag" lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason, einsöngvari er Ólöf Ólafsdóttir á Þverá en maðurinn á bak við tjöldin hann Rögnvaldur Valbergsson útsetti lagið. En þess má geta að hann útsetur nokkur lög hjá kórnum.
http://www.youtube.com/watch?v=iF9lwuaUnok