Sóldís með tónleika í kvöld á Hofsósi

Kvennakórinn Sóldís í Skagafirði heldur tónleika í kvöld í Höfðaborg, Hofsósi og hefjast þeir klukkan 20:30. Söngstjóri er Sólveig S. Einarsdóttir, undirleikari Rögnvaldur Valbergsson og einsöngvarar þær Ólöf Ólafsdóttir og Sigríður Margrét Ingimarsdóttir.

Miðaverð er krónur 2000 og athygli vakin á því að kort eru ekki tekin. Kórkonur hlakka til kvöldsins og vonast til að sjá sem flesta.

Fleiri fréttir