Spáð hlýnandi veðri

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðan 5-8 og dálítil él. Lægir í dag og léttir smám saman til. Frost 0 til 5 stig. Í spá Veðurstofu Íslands fyrir morgundaginn verður vaxandi suðaustanátt 10-15 og dálítil rigning síðdegis. Hiti 0 til 6 stig.

Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir nokkuð víða samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en hálka á Öxnadalsheiði þar sem einnig er éljagangur. Vegfarendur sem fara um Þverárfjall eru enn beðnir að sýna aðgát. Þar er vegur mjög ósléttur og er hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu, fyrst SV-lands. Hægari og þurrt á N- og A-landi, en hvessir seinni partinn og dálítil slydda eða rigning þar um kvöldið. Hlýnandi veður, hiti 3 til 8 stig síðdegis.

Á laugardag:
Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða él, en léttskýjað á NA- og A-landi. Hiti 0 til 7 stig, mildast á Austfjörðum. Hægari vindur og víða frost um kvöldið.

Á sunnudag:
Snýst í fremur hæga norðanátt. Bjart með köflum, en sums staðar él við N- og A-ströndina. Hiti 1 til 7 stig yfir daginn, en næturfrost víðast hvar.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt. Slydda eða snjókoma með köflum og fremur kalt.

Fleiri fréttir