Spennandi leikur!
Fröken Fabjúlöss hefur svo ofsalega gaman að öllum uppákomum og leikjum ýmiskonar. Að því tilefni hefur hún ákveðið að hrinda af stað alveg svakalega skemmtilegum leik fyrir glamúrpíurnar sínar!
Leikurinn fer þannig fram að þið setjið eitthvað ótrúlega skemmtilegt naglalakk á ykkur, takið mynd af því og sendið á frokenfab@feykir.is og verður svo einn heppinn vinningshafi dregin út og eru verðlaunin 3 litir úr Germany línunni frá OPI í boði Artica! Leikurinn byrjar í dag, 3. október og dregið verður úr vinningum eftir hádegi fimmtudaginn 11. október þannig að frestur til að senda inn myndir er til hádegis þann dag.
Nú er um að gera að setjast niður með naglalökkin ykkar og láta hugmyndaflugið taka ykkur í skemmtilegt ferðalag :) Engin takmörk- annaðhvort eitthvað einfalt og flott naglalakk eða eins margir litir, munstur og aukahlutir og ykkur lystir.
Þið eruð alltaf fabjúlöss, hversvegna ekki að senda inn mynd og eiga möguleika á því að fá flottann vinning fyrir það?