Spennandi lokasprettur hjá Stólunum
Á morgun skreppur karlalið Tindastóls yfir Tröllaskagann og mætir fyrna sterku Þórsliði í 1. deildinni. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og verður háður á Þórsvellinum og eru allir stuðningsmenn Tindastóls hvattir til að mæta á völlinn og styðja við strákana.
Þórsararnir tróna efstir á toppi deildarinnar með 35 stig eftir 17 leiki en Tindastóll situr í 9. sæti með 21 stig. Mikil spenna er nú í deildinni þegar fáir leikir eru eftir og er engin leið að sjá hvernig hún mun líta út í lokin. Ljóst er að hvert stig er dýrmætt fyrir hvert og eitt félag og enginn mun gefa eftir á endasprettinum. Á laugardag verður háður mikilvægur leikur fyrir Stólana en þá koma Leiknismenn norður en þeir eru tveimur sætum neðar með 16 stig. Ef sá leikur fellur Stólum í hag nægir að krækja í tvö stig í viðbót til að halda sér uppi í deildinni fari svo að ekki bætist í sarpinn á morgun.
Þrír síðustu leikir Tindastóls á þessu tímabili verða svo gegn Hetti á útivelli 8. september, heimaleikur gegn Þór 15. sept. og Þrótti úti 22. september.
Staðan í 1. deild.
Staðan Leikir og úrslit Markahæstir
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
1. ![]() |
17 | 11 | 2 | 4 | 30 - 19 | +11 | 35 |
2. ![]() |
18 | 10 | 2 | 6 | 26 - 17 | +9 | 32 |
3. ![]() |
18 | 7 | 8 | 3 | 37 - 19 | +18 | 29 |
4. ![]() |
18 | 7 | 6 | 5 | 25 - 23 | +2 | 27 |
5. ![]() |
18 | 7 | 6 | 5 | 19 - 20 | -1 | 27 |
6. ![]() |
18 | 7 | 5 | 6 | 31 - 26 | +5 | 26 |
7. ![]() |
18 | 6 | 6 | 6 | 26 - 24 | +2 | 24 |
8. ![]() |
18 | 5 | 7 | 6 | 24 - 32 | -8 | 22 |
9. ![]() |
17 | 6 | 3 | 8 | 29 - 28 | +1 | 21 |
10. ![]() |
18 | 4 | 6 | 8 | 24 - 33 | -9 | 18 |
11. ![]() |
18 | 3 | 7 | 8 | 25 - 31 | -6 | 16 |
12. ![]() |
18 | 4 | 2 | 12 | 18 - 42 | -24 | 14 |