Spilað til heiðurs Gunna Þórðar
Bridgefélag Sauðárkróks hóf vetrarstarf sitt þriðjudaginn 23. október sl. Félagar koma saman einu sinni í viku á þriðjudögum klukkan 19:00 í bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki. Fyrsta spilakvöld félagsins á þessum vetri var til heiðurs "unglingnum" Gunnari Þórðarsyni sem varð 95 ára á dögunum.
Gunnar hefur spilað bridge með félaginu í 70 ár eða frá árinu 1942. Boðið var upp á marsipan tertu og kaffi af þessu tilefni. Spilamennska gekk vel og var spennandi frá fyrsta spili. Það voru þeir Bjarki Tryggvason og Skúli V. Jónsson sem stóðu uppi sem sigurvegarar með einu stigi meira en afmælisbarnið þegar kvöldið var gert upp.
Úrslit voru eftirfarandi:
- Bjarki Tryggvason og Skúli V Jónsson: 56 stig
- Gunnar Þórðarson og Jón Örn Berndsen/Ásgrímur Sigurbjörnsson 55 stig
- Ólafur Björn Stefánsson og Guðni Kristjánsson 52 stig