Spiluðu golf í tólf tíma
Börn og unglingar í Golfklúbbi Sauðárkróks spiluðu golfmaraþon á Hlíðarendavelli föstudaginn 15. júní. „Við viljum einnig þakka sérstaklega öllum þeim fjölmörgu bæjarbúum sem hétu á okkur og hvöttu okkur þannig til enn frekari dáða,“ segir í fréttatilkynningu frá GSS.
Byrjað var kl. 8 um morguninn og spilað þar til um kl. 20 um kvöldið. Krakkarnir náðu að spila í heildina 1182 holur á þessum tíma sem er mjög gott. Yngstu kylfingarnir sem tóku þátt að þessu sinni voru 7 ára gamlir. „Við viljum þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessu skemmtilega maraþoni okkar kærlega fyrir,“ segir í tilkynningu.
Í lokin var slegið upp heljarinnar veislu fyrir alla kylfingana sem síðan fóru glaðir, kátir og þreyttir heim að þessu loknu. „Það hefur sjaldan verið eins mikið fjör á vellinum og þennan dag og að sjálfsögðu komir fjölmargir foreldrar og gestir til að fylgjast með hópnum og hvetja þau til dáða,“ segir loks í tilkynningu.