Spjallfundum sauðfjárbænda frestað
Spjallfundum sauðfjárbænda sem fyrirhugað var að halda í Ketilási á morgun, 30. janúar og á Löngumýri á fimmtudaginn 31. janúar, hefur verið frestað vegna óviðráðanlegra orsaka.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Félagi sauðfjárbænda í Skagafirði verða fundirnir þess í stað haldnir mánudaginn 4. febrúar, í Ketilási kl. 14 og á Löngumýri kl. 20:30.