Starfsemi Húss frítímans að fara af stað

Hús frítímans hefur starfsemi sína aftur eftir sumarfrí mánudaginn 17. September þar sem dagskrá verður með svipuðu sniði og síðasta vetur. Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að „Fjölskyldan og frítíminn“ verði á sínum stað í vetur, fyrsta mánudag hvers mánaðar, í fyrsta sinn í dag, mánudaginn 10. sept.

Eldri borgarar eru á mánudögum og fimmtudögum  frá kl. 13-16 með spil og spjall og miðvikudaga kl. 10 með létta leikfimi. Skráning í leikfimina hjá Helgu í síma: 6604688. Opið hús á föstudögum kl. 10-12 þar sem verður dansað og spjallað.

Félagsmiðstöð fyrir 4.-5. bekki  verður á þriðjudögum kl. 14-17 og Félagsmiðstöð fyrir 6. og 7. bekki á miðvikudögum kl. 14-17.

Félagsmiðstöð fyrir 8.-10. bekki er á þriðjudags- og föstudagskvöldum kl. 20-22.

Opið hús er á föstudögum frá kl. 14-17 fyrir alla aldurshópa þar sem boðið verður upp á fjölbreytta starfsemi. Stefnt er að því að Frístundastrætó verði áfram á föstudögum og byrji í október.

„Vertu samfó hópurinn“  hittist í húsinu á miðvikudögum og föstudögum kl. 10-12.

Opið er fyrir 16 ára og eldri á fimmtudagskvöldum frá kl. 19-23.

Hægt er að panta tíma fyrir klúbbastarf, bekkjarkvöld, afmælisparty o.fl. á netfangið husfritimans@skagafjordur.is eða í síma 455-6109.

 

Fleiri fréttir