Starfsfólk vantar í Varmahlíð í haust
Íþróttamiðstöðin í Varmahlíð auglýsir eftir starfskröftum, karli og konu, í 50% og 60% starf í haust. Viðkomandi þurfa að vera eldri en 18 ára og æskilegt er að viðkomandi séu með björgunarsundpróf. Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2013. Nánari upplýsingar um starfið gefur Monika Borgarsdóttir í síma 864-0820 og 453-8824 eða monika@skagafjordur.is. Skila skal rafrænum umsóknum, helst í íbúagátt sveitarfélagsins eða á heimasíðu sveitarfélagsins. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags Skagafjarðar eða Öldunnar – stéttarfélags.