Starfssviðum Skagafjarðar verður fækkað úr sjö í þrjú
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur ákveðið í umboði sveitarstjórnar, að fara í hagræðingaraðgerðir og stjórnskipulagsbreytingar sem kynntar voru á fundi ráðsins í morgun. Tillögurnar hafa verið kynntar öðrum sveitarstjórnarfulltrúum sem allir hafi lýst sig fylgjandi breytingunum.
Á öðrum fundi núverandi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar sumarið 2010 var rædd brýn þörf á að fara í heildarendurskipulagningu og markvissa endurskoðun á rekstri Sveitarfélagsins. Í ársbyrjun 2011 hófst vinna við skoðun á rekstri Sveitarfélagsins og haustið 2011 var samið við rekstrarráðgjafann Harald Líndal Haraldsson um heildstæða rekstrarúttekt sem hann hefur nú skilað af sér. Í framhaldi af þeirri úttekt og vegna 64.gr sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um að samanlögð heildarútgjöld vegna A og B-hluta í reikningsskilum sveitarfélaga megi ekki vera hærri á hverju þriggja ára tímabili en sem nemur samanlögðum reglulegum tekjum.
Bæði er um almennar aðgerðir að ræða sem og breytingar á skipuriti sveitarfélagsins. Einn liður í þessum aðgerðum er að ná niður launakostnaði og er eitt af markmiðunum að hann verði orðinn um 57% af heildartekjum árið 2014 en er í dag um 65,9% af heildartekjum, sem er óviðunandi. Helstu breytingar eru þær að sviðum verður fækkað úr sjö í þrjú, en þau verða fjármála- og stjórnsýslusvið, veitu- og framkvæmdarsvið og fjölskyldusvið.
Rekstrarformi Skagafjarðarveitna ehf verður breytt og verður það með sama hætti og aðrar B-hluta stofnanir sveitarfélagsins. Sameining verður á Skagafjarðarveitum, þjónustumiðstöð (áhaldahúsi) og eignasjóði. Einnig mun markaðs- og þróunarsvið verða sameinað fjármála- og stjórnsýslusviði. Atvinnu- og ferðamálanefnd og menningar-og kynningarnefnd verða sameinaðar í eina nefnd.
Nýtt stjórnskipulag mun taka gildi 1. september nk. og kallar hluti þessara breytinga á breytingar á samþykktum sveitarfélagsins í samræmi við lög.
Stefnt er að kynningafundi fyrir íbúa sveitarfélagsins í byrjun september nk. þegar sem flestir verða komnir úr sumarleyfum.