Steingrímur J. Norðlendingur ársins
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, er Norðlendingur ársins 2009 að mati hlustenda Útvarps Norður- og Austurlands. Þuríður Harpa í öðru sæti.
Kjörinu var lýst í sérstakri áramótaútsendingu á RÚV í gær. Þrettán voru tilnefndir en Steingrímur hlaut nokkuð afgerandi kosningu. Í öðru sæti í kjörinu var Þuríður Harpa Sigurðardóttir á Sauðárkróki, sem fór á árinu fyrst Norðurlandabúa í stofnfrumumeðferð á Indlandi vegna mænuskaða. Feykir.is óskar þeim Steingrími og Þuríði til hamingju með árangurinn.