Stella í orlofi frumsýnd í dag
Leikhópur NFNV frumsýnir leikritið Stellu í Orlofi eftir Guðnýju Halldórsdóttur í dag kl. 20:00 í sal Bóknámshúss FNV. Leikstjórn er í höndum Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur og tónlistarflutningur er í höndum nemenda undir stjórn Reynis Snæs Magnússonar.
Sýningartímar eru svohljóðandi:
- Frumsýning mánudaginn 12. nóv. kl. 20
- 2. sýning miðvikudaginn 14. nóv. kl. 20
- 3. sýning fimmtudaginn 15. nóv. kl. 20
- 4. sýning föstudaginn 16. nóv. kl. 20
- 5. sýning laugardaginn 17. nóv. kl. 17
- 6. sýning sunnudaginn 18. nóv. kl. 14
- 7. sýning sunnudaginn 18. nóv. kl. 20
- 8. sýning þriðjudaginn 20. nóv. kl. 20
Verð fyrir nemendur í NFNV og 16 ára og yngri er 1500 kr. en 1900 kr. fyrir aðra. Hópafsláttur er veittur fyrir 10 eða fleiri ef pantað er fyrirfram. Pöntunarsími er s. 455 8070 en hægt er að hringja á milli kl. 16-18 alla sýningardaga.