Stella í orlofi sett á svið

Leikhópur NFNV sýnir leikritið Stellu í Orlofi eftir Guðnýju Halldórsdóttur en frumsýning fer fram mánudaginn 12. nóvember kl. 20. Leikstjórn er í höndum Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur og tónlistarflutningur er í höndum nemenda undir stjórn Reynis Snæs Magnússonar. 

Sýningartímar eru svohljóðandi:

  • Frumsýning mánudaginn 12. nóv. kl. 20
  • 2. sýning miðvikudaginn 14. nóv. kl. 20
  • 3. sýning fimmtudaginn 15. nóv. kl. 20
  • 4. sýning föstudaginn 16. nóv. kl. 20
  • 5. sýning laugardaginn 17. nóv. kl. 17
  • 6. sýning sunnudaginn 18. nóv. kl. 14
  • 7. sýning  sunnudaginn 18. nóv. kl. 20
  • 8. sýning þriðjudaginn 20. nóv. kl. 20

Verð fyrir nemendur í NFNV og 16 ára og yngri er 1300 kr. en 1500 kr. fyrir aðra. Hópafsláttur er veittur fyrir 10 eða fleiri ef pantað er fyrirfram. Pöntunarsími er s. 455 8070 en hægt er að hringja á milli kl. 16-18 alla sýningardaga.

Fleiri fréttir