Stelpurnar spila í kvöld
Leikur Tindastóls og HK/Víkings í fyrstu deild kvenna sem vera átti á sunnudaginn hefur verið færður fram. Verður hann leikinn í dag klukkan 18:00 á Sauðárkróksvelli. Tindastólsstúlkum hefur gengið þokkalega í sumar, hafa unnið fjóra leiki, eru með 12 stig og sitja í 7. sæti.
Með sigri í kvöld gætu Stólastúlkur endað í 6. sæti deildarinnar svo framarlega sem Keflavík tapi sínum leik gegn Grindavík en hann er einnig háður í kvöld. Það gæti reynst erfiður róður hjá Stólum því HK/Víkingur situr í 2. sæti með 8 unna leiki og 2 jafntefli og eru með 26 stig. En með góðri baráttu og fullu sjálfstrausti er allt hægt og eru allir hvattir til að mæta á völlinn og styðja við bakið á okkar ágæta kvennaliði.