Steven Beattie nýr leikmaður Tindastóls
Karlalið Tindastóls varð fyrir mikilli blóðtöku um daginn þegar tveir aðalleikmenn liðsins Ben Everson og Theodore Furness ákváðu að freista gæfunnar hjá öðrum liðum og skildu eftir sig stórt skarð sem þarf að fylla. Nú hefur Tindastóll komist að samkomulagi við Steven Beattie sem á að fylla í skarð markamaskínunnar Ben Everson eins og sagt er á Tindastóll.is
Steven er Írskur leikmaður sem kemur til Tindastóls frá Puerto Rico Islanders en þar áður var hann á mála hjá Toronto FC í Bandarísku MLS-deildinni. Beattie hefur verið síðustu mánuði á æfingum hjá Írska úrvalsdeildarliðinu Dundlak FC.
Beattie er kominn með leikheimild og er von á honum á Krókinn á miðvikudaginn.