Steven og Colin hlaupa í skörðin hjá Stólunum
Talsverður hræringur er á leikmannamálum hjá Tindastóli í 1. deildinni. Sem kunnugt er hafa Theo Furness og Ben J. Everson flutt sig til liða í efstu deild og senn fer Dominic Furness af landi brott til náms. Til að fylla í skörðin hafa Stólarnir kallað til fleiri erlenda leikmenn.
Steven Beattie hefur tekið við stöðu Eversons uppi á toppnum hjá Stólunum eins og áður hefur verið sagt frá á Feykir.is.
Auk hans hefur Colin Helmrich gengið til liðs við Tindastól en hann er 22 ára sóknarþenkjandi Bandaríkjamaður sem spilaði með Springfield Diamize í PDL deildinni. Þess má geta að Colin spilaði fyrir sama skóla og Max Touloute. Colin og Steven hafa báðir opnað markareikning sinn hjá Stólunum og skoruðu í leiknum gegn ÍR á dögunum.
Þá kom einnig á Krókinn 25 ára írskur kantmaður, Conor Killeen, sem spilaði með Dublin City í írsku deildinni en hann stóð ekki undir væntingum og hefur verið skilað til sinna heimahaga.
Fyrir hjá Stólunum eru markvörðurinn Sebastian Furness og kantarinn knái, Max Touloute, en Dominic Furness, sem tók út leikbann gegn ÍR ætti að spila sinn síðasta leik með Stólunum á fimmtudaginn þegar KA kemur í heimsókn.