Stjórn heilbrigðisstofnana í hendur heimamanna

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, er 1. flutningsmaður tillögu  sem felur það í sér að færa stjórn heilbrigðisstofnana í heimabyggð. Meðflutningsmenn eru auk Ásmundar fjórir aðrir þingmenn Framsóknarflokksins og einn þingmaður vinstri grænna.

 

Tillagan felur í sér að heilbrigðisráðherra verði falið að undirbúa og leggja fram á næsta þingi lagafrumvarp sem tryggir að fulltrúar sveitarstjórna og starfsmenn heilbrigðisstofnana taki beinan þátt í að skipuleggja þjónustu heilbrigðisstofnana í heimabyggð.  Til að þetta geti orðið að veruleika þarf að skipa sérstakar stjórnir í hverju heilbrigðisumdæmi sem eiga að veita ráðgjöf og hafa eftirlit með rekstri þeirra.

Í núverandi lögum um heilbrigðisþjónustu er gert ráð fyrir því að forstjórar heilbrigðisstofnana hafir einir umsjón með rekstri heilbrigðisstofnana.  Í lögunum er hvergi gert ráð fyrir að fulltrúar sveitarfélaga eða starfsmenn heilbrigðisstofnana geti með beinum hætti tekið þátt í að skipuleggja þá þjónustu sem stofnunin veitir. Áður en núverandi lög tóku í gildi voru starfræktar stjórnir á þjónustusvæðunum sem veittu ráðgjöf og höfðu eftirlit með rekstri heilbrigðisstofnana.

„Með frumvarpinu aukum við tengsl sveitarfélaga við heilbrigðisstofnanir og tryggjum að skipulag sé í sátt við heimamenn.  Þetta er sérstaklega mikilvægt á tímum sem þessum þar sem verið er verið að ráðast harkalega gegn heilbrigðisstofnunum víða á landinu án nokkurs samráðs við heimamenn á hverju svæði“, segir Ásmundur Einar.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir