Stjörnumenn voru sterkari en Stólarnir

Tindastóll spilaði sinn fyrsta leik í hinni splunkunýju Dominos-deild í gærkvöldi en þá kom sterkt lið Stjörnunnar úr Garðabæ í heimsókn í Síkið. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik reyndust gestirnir sterkari og unnu öruggana 11 stiga sigur, 79-90.

Það var fín mæting í Síkið og stuðningsmenn Tindastóls spenntir að sjá nýja leikmenn fara á kostum. Að venju voru menn spenntir að sjá Bandaríkjamennina tvo, þá George Valentine og Isaac Miles, en þeir voru báðir afar daprir, nánast hlédrægir, og náðu sér engan vegin á strik.

Byrjunarlið Tindastóls var skipað þeim Sigtryggi Arnari Björnssyni, Valentine, Helga Rafni, Hreinsa og Miles. Stólarnir byrjuðu leikinn vel og komust í 5-0 en Stjörnumenn voru snöggir að snúa því við, komust í 5-8 og leiddu með sex stiga mun að loknum fyrsta fjórðungi og kom um helmingur stiga Stjörnunnar af vítalínunni. Marvin var seigur fyrir Stjörnuna sem oft áður en Justin Shouse var óvenju spakur í fyrri hálfleik, fékk reyndar skurð fyrir ofan augabrún sem kannski varð til þess að miðið var ekki alveg rétt stillt. Stólarnir kláruðu annan leikhluta sterkt en Rikki hélt okkar mönnum inni í leiknum. Vörn Tindastóls var sterk og Stjörnunni gekk illa að klára sínar sóknir. Staðan jöfn í hálfleik, 38-38.

Gestirnir voru firnasterkir í byrjun þriðja leikhluta á meðan sóknir Tindastóls gengu ekki upp. Varnarleikurinn var skárri en Stjarnan seig framúr og ekki varð það til að bæta stöðu Stólanna þegar Þresti Leó var vikið úr húsi, fékk tvær tæknivillur á tveimur sekúndum hjá röggsömu dómaraþríeyki. Því síður var það gott mál að Justin Shouse fann fjölina sína og varð nánast óviðráðanlegur. Barátta beggja liða var í góðu lagi en Stjarnan var yfir eftir þriðja leikhluta, 52-60.

Það voru Helgarnir tveir sem héldu Stólunum inni í leiknum í fjórða leikhluta en því miður hrukku kanarnir okkar aldrei í gang í leiknum og áttu erfitt uppdráttar gegn sterku Stjörnuliði. Stólarnir náðu aldrei að nálgast gestina í lokafjórðungnum og á endanum fór það svo að Stjarnan sigraði sanngjarnt, 79-90.

Bestur í liði Tindastóls var Helgi Rafn Viggósson, kappinn gerði 20 stig og tók 10 fráköst og barðist fyrir hverjum bolta. Rikki átti ágæta kafla og þá var gaman að sjá að Bárður rúllaði mannskapnum vel. Auk Sigtryggs Arnars (sonar Bjössa Sigtryggs og Guðrúnar systur Ómars Sigmars) fengu Pétur Rúnar Birgisson (Bigga Rafns og Hröbbu) og Ingvi Rafn Ingvarsson (Ingvars Magg og Hjördísar) að spreyta sig og þessir strákar eiga framtíðina fyrir sér. Annars var talsverður haustbragur á Stólunum en sem fyrr segir þá ullu kanarnir vonbrigðum og þurfa heldur betur að girða sig í brók.

Dómararnir voru þrír í gær og ekki fannst heimamönnum í stúkunni það vera breyting til batnaðar. En nýjum tímabilum fylgja oft nýjar áherslur í dómgæslunni og því verða víst bæði leikmenn og áhorfendur að venjast.

Stig Tindastóls: Helgi Rafn 20/10 frk, Rikki 16/6 frk, Isaac Miles 13/6 frk, George Valentine 10 stig/9 frk, Sigtryggur Arnar 6, Helgi Margeirs 5, Þröstur Leó 5, Svavar 2 og Hreinsi 2.

Fleiri fréttir