Stólarnir skipta um leikmenn - Igor Tratnik á Krókinn
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur ákveðið að senda hinn hávaxna leikmann Myles Luttman til síns heima og hafa fengið Igor Tratnik til að koma í hans stað en hann hefur verið leikmaður Vals í vetur.
Ljóst var fljótlega eftir að Luttman kom á Krókinn að hann skorti ýmislegt sem gott er að hafa í körfubolta en hæðin ein dugði ekki til að festa sig í sessi í liði Tindastóls. Igor Tratnik kemur frá Val sem eru að draga saman seglin eftir erfiða baráttu í vetur en ekkert stig er komið í hús enn. Igor sem er á 23. aldursári hefur að meðaltali gert 15.3 stig í leik með Valsmönnum og tekið 10.5 fráköst. Hann er væntanlegur á æfingu hjá Tindastóli á morgun en hann verður löglegur með liðinu í næsta leik á fimmtudaginn er Stóllinn sækir Fjölni heim í Grafarvoginn.