Stólastúlkur lutu í lægra haldi fyrir sterku liði Fylkis
Meistaraflokkur Tindastóls kvenna í knattspyrnu beið lægri hlut fyrir Fylkisstúlkum í fyrsta leik sínum í 1. deildinni þetta tímabilið. Leikið var á Fylkisvellinum í strekkingsvindi sem þær norðlensku léku á móti í fyrri hálfleik. Fyrirfram var búist við mjög erfiðum leik þar sem sunnanstúlkur eru ekki ánægðar með veru sína í þessari deild en þær féllu óvænt úr Pepsí-deildinni á síðustu leiktíð.
Dagsskipunin var að pakka í vörn og reyna að halda hreinu í fyrri hálfleik en sækja þá í þeim seinni með vindinn í bakið. Mótvindurinn gerði Stólunum erfitt fyrir og fór svo að Fylkisstúlkur náðu að setja boltann tvisvar í mark Stólanna. Í seinni hálfleik gekk betur þar sem fleiri mörk voru ekki skoruð. Eins og við mátti búast sóttu Fylkisstúlkur ákaft að marki Stólanna sem áttu líka sín færi þó ekki næðist að skora í þetta sinn. Í lok leiks var Bryndís Rut markmaður valin maður leiksins en hún átti stórleik með frábærri frammistöðu sinni milli stanganna.
Byrjunarlið Tindastóls:
- Bryndís Rut Haraldsdóttir (M)
- Sunna Björk Atladóttir (F)
- Guðrún Jenný Ágústsdóttir
- Ólína Sif Einarsdóttir
- Fríða Rún Jónsdóttir
- Rakel Svala Gísladóttir
- Svava Rún Ingimarsdóttir
- Sigurveig Anna Gunnarsdóttir
- Bryndís Rún Baldursdóttir
- Brynhildur Ósk Ólafsdóttir
- Rakel Hinriksdóttir
Varamenn:
- Kristín Halla Eiríksdóttir (M)
- Snæbjört Pálsdóttir Inn 65
- Hugrún Pálsdóttir Inn 65
- Bríet Guðmundsdóttir Inn 80
- Helga Rut Hjartardóttir Inn 85
- Erla Björt Björnsdóttir Inn 85
Næsti leikur stúlknanna verður í ÍA höllinni á Akranesi nk. föstudag.