Stóll-inn, Stóll-inn, Stóll-inn - TINDASTÓLL!

Tindastóll lagði rétt í þessu gott lið KR í undanúrslitum Powerade bikarsins í Síkinu og var sigurinn sanngjarn. Stólarnir voru oftar en ekki skrefinu á undan Vesturbæingum í hreint geggjuðum körfuboltaleik sem var spilaður á fullu tempói frá fyrstu til síðustu mínútu, leikmenn voru á stóru tánum og áhorfendur stóðu á öndinni. Tindastóll var 3 stigum yfir í leikhléi, 45-42, og þegar upp var staðið munaði enn þremur stigum, lokatölur 89-86. Lið Tindastóls er því komið í úrslitaleikinn þar sem það mætir reynsluboltunum úr Keflavík.

Stólarnir komu einbeittir til leiks og ætluðu greinilega að rífa sig upp eftir tvo slæma tapleiki í deildinni. Stemningin í hópnum var mikil og smitaði stuðningsmennina sem fjölmenntu í Síkið og létu vel í sér heyra. Stólarnir komust í 5-0 með körfum frá Helga Rafni og Tratnik sem var að spila sinn fyrsta heimaleik fyrir Stólana og var frábær í leiknum. KR-ingar komu sér inn í leikinn og komust yfir 7-10 en þá kom frábær kafli heimamanna sem gerðu 13 stig í röð og staðan 20-10. KR klóraði í bakkann fyrir lok fjórðungsins og þegar annar leikhluti hófst var staðan 23-17. Fyrstu körfurnar voru KR-inga, Ferguson setti niður tvö stig og Hreggviður mynnti á sig með þristi. Aftur kom góður kafli hjá heimamönnum, sem voru alls ósmeikir, og þeir breyttu stöðunni úr 25-24 í 39-27 og ljómandi stemning í Síkinu. KR-ingar voru hinsvegar ekki mættir á Krókinn til að gefa leikinn og þeir hertu á varnarleiknum og minnkuðu muninn hægt og sígandi. Kannski er ekki beinlínis hægt að segja að Joshua Brown spili hægt og sígandi en þessi leiftursnöggi leikstjórnandi KR gerði 9 síðustu stig gestanna í öðrum leikhluta og minnkaði muninn í 45-42. Í fyrri hálfleik höfðu átta leikmenn Tindastóls skorað en aðeins fjórir KR-ingar.

Brown setti niður þrist í upphafi þriðja leikhluta en síðan náðu Stólarnir yfirhöndinni, Rikki gerði tvo þrista á 15 sekúndum, staðan orðin 60-51 og Tratnik bætti við tveimur stigum. Aftur komu KR-ingar og nú með Hreggvið og Ferguson í fararbroddi og þegar þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum minnkaði Brown muninn í 64-62 og síðan fékk hann þrjú vítaskot eftir að Þröstur Leó reyndist fulldjarfur í vörninni. Brown setti öll skotin niður og kom KR yfir, 64-65. Hreinsi Bigga svaraði með þristi en aftur jafnaði Brown. Það voru síðan Helgi Freyr og Þröstur Leó sem sáu um að setja niður sitthvort vítaparið áður en leikhlutinn var úti og staðan 71-67.

Eftir tveggja mínútna leik í fjórða leikhluta voru KR komnir með forystu 73-74 og nú var allt á algjörum suðupunkti í Síkinu. Bæði lið lögðu allt í leikinn og áhorfendur voru heldur betur með á nótunum. Það var nánast slegist um hvern bolta á vellinum og spennan rafmögnuð, hrópað, klappað og stappað og pallarnir nötruðu og skulfu. Tratnik og Allen skoruðu fyrir Stólana en Brown minnkaði muninn í 77-76. Þröstur Leó braust þá í gegnum vörn KR af harðfylgi og lagði boltann í körfuna og sótti villu á Ferguson og vítið setti hann niður af öryggi og heldur annar bragur á kappanum en fyrst í haust. Þröstur setti síðan niður þrist skömmu síðar og kom Stólunum í 85-78 þegar þrjár mínútur lifðu og nú fundu stuðningsmenn Stólanna sigurbragði en það er hættulegt að fagna of snemma í körfunni því hlutirnir breytast hratt. Nú fóru liðin að gera sig sek um mistök í sókn, enda vörnin spiluð fast og enginn leikmaður gaf þumlung eftir. Brown minnkaði muninn í 2 stig með þriggja stiga skoti, 85-83, en Allen gerði laglega körfu og staðan 87-83 þegar 2 mínútur voru eftir. Klukkan silaðist áfram og baráttan harðnaði enn. Ferguson setti niður eitt af tveimur vítum fyrir KR og þegar hálf mínúta var eftir setti Dejan Sancanski niður tvö víti og munurinn eitt stig, 87-86. Það sem eftir lifði spiluðu Stólarnir af skynsemi og KR-ingar urðu að brjóta þrisvar áður en heimamenn fóru á vítalínuna. Miller setti niður fyrra skot sitt en það síðari skoppaði af hringnum og KR fékk boltann. Þröstur Leó fiskaði fljótt ruðning á Ferguson sem var klaufi og Stólarnir fengu boltann aftur og nú neyddist Hreggviður til að brjóta á Miller og það fór á sömu leið, hann setti niður fyrra skotið og KR-ingar geystust í sókn þegar rúmar 3 sekúndur voru eftir, Dejan náði skoti en það var ónákvæmt og undir pressu frá Tratnik og lokatölur því 89-86. Pjúh!

Leikmenn og stuðningsmenn Tindastóls fögnuðu því sætum sigri. Strákarnir stóðu allir fyrir sínu og rúmlega það en kannski má nefna sérstaklega Tratnik sem var góður bæði í vörn og sókn og þá var mikil og góð stemning í kringum Þröst Leó. Þá nýtti Allen færi sín innan teigs frábærlega. Níu leikmenn Tindastóls komust á blað, allir þeir sem annað borð komu inná. Hjá KR voru það kanarnir tveir sem báru uppi leikinn, gerðu 62 stig af þeim 86 sem liðið gerði. Hreggviður átti sína spretti en var ekki eins afgerandi og oft áður en verst va þó fyrir KR-inga að Finnur Magnússon fann sig ekki, gerði aðeins tvo stig og það úr vítum en Finnur lenti í villuvandræðum snemma og spilaði aðeins í tæpar 12 mínútur.

Stólarnir geta nú fagnað því að vera komnir í bikarúrslitaleikinn en þar mætir liðið Keflvíkingum sem unnu öruggan sigur á liði KFÍ frá Ísafirði í kvöld.

Stig Tindastóls: Tratnik 19 / 5 varin skot, Allen 18 / 7 fráköst, Þröstur Leó 11, Svabbi 9, Miller 9 / 8 stoðsendingar, Rikki 8, Hreinsi 6, Helgi Freyr 5, Helgi Rafn 4.

Fleiri fréttir