Stóra upplestrarkeppnin

Lokahátíð upplestrarkeppni 7. bekkjar grunnskólanna í Skagafirði verður haldin í sal bóknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þann 5. mars kl. 17.

Á hátíðinni munu nemendur sem valdir hafa verið úr skólum byggðarlagsins lesa brot úr skáldverki og ljóð. Dómnefnd velur þrjá bestu upplesarana og veitt verða verðlaun.

Nemendur frá Tónlistarskóla Skagafjarðar leika á hljóðfæri. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Heimild: Sjónhornið.

Fleiri fréttir