Stórlax úr Húseyjarkvísl
Fyrsti laxinn er kominn á land í Húseyjarkvísl í Skagafirði og var þar sannkallaður stórlax á ferð, 84 sm langur. Veiðimaðurinn Óskar Már Atlason hreppti hnossið þann 16. júní sl. í Nátthaganum í landi Víðimels, það er vefsíðan Veiðimenn.com sem greinir frá þessu.
„Óskar var ekki viss um hvað flugan héti sem hann fékk hann á en orðaði þetta einhvern vegin svona: „Þetta var einhver heimagerð fluga frá ykkur bræðrum“ og virkar svona helvíti vel... verður sjálfsagt skírð Óskar bara...,“ segir loks á vefsíðunni.