Stórsýning gæðinga í reiðhöllinni á morgun
Það stefnir í stórgóða sýningu í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki á morgun. Mörg úrvalshross koma fram, þar á meðal eru Alfa frá Blesastöðum, Þóra frá Prestbæ, Sindri frá Vatnsleysu, Álmur frá Skjálg, Borði frá Fellskoti og mörg fleiri úrvalshross.
Meðal atriða má nefna hreint magnað leiksjóf í þremum þáttum sem inniheldur margan frægan knapann. Skagfirskir íslandsmeistarar bregða á leik. Stóðhestakeppni. Leynigestur kemur í heimsókn. Upprennandi gæðingar af yngstu kynslóðinni og að venju verður reiðhallarskeiðið á sínum stað og þar er ekki ólíklegt að metinu verði ógnað svo er hestakosturinn þar góður, fljótasti 100m skeiðari í heimi þetta árið Sinna frá Úlfljótsvatni verður meðal keppanda.
Á eftir sýningunni munu stórsnillingarnir Jakob Jónsson og Ingi Lillu skemmta. Á laugardagskvöldið verður svo sveitaball aldarinnar með hljómsveitinni Von ásamt Magna, Siggu Beinteins og rauða ljóninu Eiríki Haukssyni sem kemur alla leið frá Noregi til að þenja raddböndin á þessu ofurballi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.