Strætó yfir Vatnsskarð vegna þungrar færðar

Feyki barst rétt í þessu ábending um að strætó hefði snúið frá Þverárfjallsvegi vegna ófærðar. Hjá strætó fengust þær upplýsingar að bíllinn sem var væntanlegur frá Reykjavík til Sauðárkróks í hádeginu færi um Langadal og Vatnsskarð og yrði því seinna á ferð.

Hjá Vegagerðinni fengust þær upplýsingar að snjóþekja væri á veginum um Þverárfjall en verið væri að hreinsa hann. Auk þess væru hraðatakmarkanir vegna skemmda á veginum en vegurinn er mjög ósléttur og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn.

Fleiri fréttir