Strákarnir í 4.flokki með silfur á Greifamóti helgarinnar
Tindastóll sendi eitt lið til leiks á Greifamóti - KA í fótbolta um helgina en mótið er fyrir stráka í 4. lokki, fæddir 1999 og 2000. Gerðu þeir sér lítið fyrir og lönduðu öðru sætinu eftir mikla baráttu gegn liði Hattar frá Egilsstöðum sem náði að skora sigurmarkið þegar 40 sekúndur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Á heimasíðu Tindastóls segir að yngri árgangurinn hafi verið að spila í fyrsta sinn á stórum velli og því mikil viðbrigði fyrir þá.
“ Viðbrigðin kannski enn meiri hjá okkur heldur en öðrum félögum á þessu móti því flest af nágranna sveitarfélögum okkar búa við mun betri vetraraðstöðu og hafa kost á því að æfa á stórum velli allan ársins hring. En það er vonandi að svona völlur komi á Krókinn áður en eitthvað af þessum strákum flytja burtu í skóla,“ skrifar Stefán Arnar Ómarsson þjálfari strákanna og hefur sitthvað til síns máls.
Strákarnir hafa þó æft vel í vetur og nýtt aðstöðuna á Króknum til hins ýtrasta en oft hefur verið snúið að koma þeim öllum fyrir á gervigrasinu við Árskóla, segir Stefán Arnar. „En með jákvæðni er flest hægt,“ segir hann enda árangurinn flottur hjá strákunum.
Sjá nánar á Tindastóll.is