Strandsiglingar hefjast til Sauðárkróks á ný
Í gærmorgun lagðist að bryggju á Sauðárkróki flutningaskipið Pioneer Bay og hefjast með því þáttaskil á Sauðárkróki en þangað kom síðast gámaskip í reglulegum strandflutningum, í nóvember 2004. Skipið er á vegum Samskipa sem nýlega hófu sjóflutninga af landsbyggðinni. Siglt er frá Vestfjörðum og Norðurlandi og beint til Bretlands og meginlands Evrópu og verður Sauðárkrókshöfn hluti af þjónustuneti þeirra.
Að sögn Gunnars Steingrímssonar hafnarvarðar á Sauðárkróki er skipið væntanlegt á hálfs mánaðar fresti en það mun þjónusta Fisk Seafood með útflutning og jafnvel fleiri fyrirtæki þegar fram líða stundir. Gunnar segir að skipið skilji eftir sig á annað hundrað þúsund krónur í hafnargjöld með hverri komu og munar um minna.