Stúlkan með lævirkjaröddina á Mælifelli í kvöld

Hreindís Ylfa Garðarsdóttir ásamt hljómsveit er á ferð um Norðurland og flytur lög til heiðurs skagfirsku dægurlagasöngkonunni Erlu Þorsteinsdóttur en tónleikaröðina kallar hún Stúlkan með Lævirkjaröddina. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir á Skagaströnd á miðvikudagskvöld og í gær söng Hreindís á Græna hattinum á Akureyri.

Í kvöld verður Hreindís ásamt hljómsveit á Mælifelli á Sauðárkróki og hefjast tónleikarnir klukkan 21.oo, en svo verður farið suður yfir heiðar og lagið tekið á stóra sviðinu á Óðinstorgi á Menningarnótt í Reykjavík kl. 18:00.

Næstu tónleikar eru fyrirhugaðir á Bæjarhátíðinni Í túninu heima í Mosfellsbæ 28. ágúst og föstudaginn 3. september í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ síðan á Café Rósenberg sunudag 5. september og loks í Reykjadal í Mosfellsbæ en það eru styrktartónleikar og verða haldnir fimmtudaginn 9. sptember.

  • Flytjendur eru:
  • Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm söngur og þverflauta
  • Yngvi Rafn Garðarsson Holm gítarar
  • Tómas Jónsson hljómborð
  • Sigurður Ingi Einarsson trommur
  • Valgeir Einarsson bassi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir